Sign In

Einar Örn Sigurdórsson

Director of Marketing (CMO) @ Advania Iceland

Einar Örn Sigurdórsson is the Chief Marketing Officer (CMO) at Advania Ísland, where he has over 25 years of experience in global marketing. He is recognized as an award-winning creative director and has a background in photography and ocean rowing. His professional focus includes leading marketing strategies and initiatives for Advania, a prominent IT services company in Iceland.12

Highlights

Aug 27 · linkedin

Varúð nördastatus: Fyrir mörgum tunglum starfaði ég á auglýsingastofunni Allen & Gerritsen og vann efni fyrir lítið en sjóðheitt tæknifyrirtæki í nágrenni Boston sem framleiddi skjákort sem hét Imagine 128 og notaði 128 bita GPU flögur sem voru hannaðar til gera leiki eins og Unreal Tournament mögulega. Fyrirtækið hét Number Nine Visual Technologies og Imagine skjákortin seldust eins og heitar lummur. Number Nine rúllaði samt yfir í sumarlandið fljótlega eftir árið 2000.

Á sama tíma, hinum megin í Bandaríkjunum, í Kaliforníu var samkeppnin, annað lítið fyrirtæki, sem hannaði líka skjákort með 128 bita GPU flögum. Þetta var NVIDIA, sem í dag er næst verðmætasta fyrirtæki heims á eftir Apple. NVIDIA er enn að framleiða skjákort með GPU flögum, en einhversstaðar í millitíðinni fékk Jensen Huang stofnandi þá grillu í höfðið að GPU flögur hentuðu vel fyrir gervigreind. Og nú má segja að nýjustu GPU ofurflögur NVIDIA séu drifkrafturinn í Gen AI byltingunni.

Það verður gaman að kynnast þessum fyrrverandi keppinauti, NVIDIA aðeins betur á sameiginlegum viðburði með Dell, fyrirtækin tvö eru að bralla ýmislegt saman, - Hér er um að ræða morgunverðarfund, kaffi og kruðerí sem er sjálfstæður viðburður, haldinn í tengslum við Haustráðstefnu Advania í Kaldalóni í Hörpu.

Skráning hér að neðan og frítt inn á meðan húsrúm leyfir.

Bjarni Ben

Aug 20 · linkedin

30 ár. Það hefur margt breyst síðan 1994 þegar fyrsta tækniráðstefna Teymis var haldin og umfjöllunarefnið var fræðsla um Oracle tæknilausnir.

Fyrsta íslenska vefsíðan var rétt að líta dagsins ljós og farsímar voru enn á stærð við skjalatösku. Ace of Base, Bubbi og Bó hljómuðu á öldum ljósvakans, Fimm gíra Lada fólksbifreið kostaði 558 þúsund og True Lies með Schwartzenegger lék fyrir fullu húsi í Háskólabíói. Enn voru ellefu ár í að fyrsta kisumyndin spilaðist á Youtube og þrettán ár voru í fyrsta snjallsímann. (Sjálfur hafði ég rétt hafið nám í Boston og spilaði fótbolta við MIT nemendur og leigubílstjóra á laugardögum.)

Teymi rann á endanum inn í þá fjölskyldu fyrirtækja sem nú heita Advania og með breyttri tækni breyttist Haustráðstefnan auðvitað líka. Frá því að vera lítill tækninördahittingur í það sem hún er í dag, - alþjóðlegur viðburður um málefni stóru myndarinnar. Nú er tæknin orðin svo stór hluti af lífi okkar allra að minnstu hnökrar á netöryggi geta sett daglegt líf almennings á hliðina. Í gervigreind býr loforð um að margfalda afköst og nýsköpun en gervigreind fylgja líka spurningar og álitamál.

Já, við ætlum sérstaklega að ræða gervigreind, netöryggi og sjálfbærni á þrítugustu Haustráðstefnunni, málefni sem eiga erindi langt út fyrir tækninördahópinn og skipta alla bransa máli. Þetta þrjátíu ára samfélag tækni og þekkingar hefur aldrei verið áhugaverðara, eða stærra.

Advania Ísland, Magnea Gestrún Gestsdóttir,Bjarni Ben,Sylvía Rut Sigfúsdóttir.

Related Questions

What are some of Einar Örn Sigurdórsson's most notable achievements in marketing?
How did Einar Örn Sigurdórsson transition from marketing to becoming a photographer?
What makes Einar Örn Sigurdórsson's approach to marketing unique?
Can you share examples of Einar Örn Sigurdórsson's work as a creative director?
What inspired Einar Örn Sigurdórsson to become an ocean rower?
Einar Örn Sigurdórsson
Einar Örn Sigurdórsson, photo 1
Einar Örn Sigurdórsson, photo 2
Add to my network

Location

Reykjavík, Capital Region, Iceland